Standa fyrir ókeypis námskeiði í stofnun fyrirtækja 30. apríl 2009 15:41 Mynd úr safni.
Nokkrir háskólanemendur hafa tekið sig saman til að berjast gegn samdrættinum og atvinnuleysinu sem Íslendingar horfast nú í augu við. Þeir hafa ákveðið að fara af stað með frítt námskeið í stofnun fyrirtækja. Í tilkynningu segir að um sé að ræða þriggja mánaða námskeið þar sem þáttakendur fara í gegnum allt ferlið við það að stofna fyrirtæki, „allt frá því að hugmynd kviknar og þangað til að hugmyndin er orðin að rekstri sem skilar reglulegum tekjum.“ Kennt verður tvö kvöld í viku og byrjar kennslan 18. maí næstkomandi. Í dag, fimmtudaginn 30. apríl kl 17:00 verður haldinn opinn kynningarfundur um námskeiðið. Á fundinum verða viðfangsefni námskeiðsins kynnt og spurningum svarað. Kynningarfundurinn verður í stofu 231a, í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. Einnig verður opið fyrir skráningu á staðnum. Unnið er að því að fá styrktaraðila til að leggja lágmarks hlutafé í fyrirtæki allra þeirra sem útskrifast af námskeiðinu. Þeir sem skrá sig á námskeiðið hljóta: • Fræðslu um stofnun fyrirtækja • Aðstoð við að móta fyrirtækjahugmyndir • Fyrirlestra frá fagaðilum um sölumennsku, bókhald, markaðssetningu o.s.frv. • Reynslusögur annarra frumkvöðla • Fjárhagsstuðning í formi niðurgreiðslu á stofnhlutafé • Aðstoð við formlega stofnun fyrirtækis • Aðstoð við að finna ódýrt/ókeypis húsnæði • Rekstrarráðgjöf • ECTS námseiningar til háskólagráðu fyrir þá sem skrá sig í viðbótarnámskeið • Sín eigin fyrirtæki og forræði yfir eigin framtíð :) „Námskeiðið er skipulagt af fólki í sjálfboðastarfi og engar tekjur munu verða af því. Skipuleggjendur námskeiðsins eru ekki sérfræðingar á þessu sviði, heldur námsmenn með reynslu af fyrirtækjarekstri. Fengnir verða fagmenn og sérfræðingar til að kafa dýpra ofan málin," segir ennfremur. Skráning fer fram því að senda tölvupóst á stofnun@gmail.com.
Mest lesið Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Viðskipti innlent Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Viðskipti innlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Viðskipti innlent Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Neytendur Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Atvinnulíf Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Fleiri fréttir Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Sjá meira