Formúla 1

Reynslan gæti skipt sköpum

Adrian Sutil og Giancarlo Fisichella aka spánýjum Force India á Jerez brautinni á Spáni þessa vikuna.
Adrian Sutil og Giancarlo Fisichella aka spánýjum Force India á Jerez brautinni á Spáni þessa vikuna.
Ítalinn Giancarlo Fisichella ók nýjum Force India bíl á Jerez brautinni á Spáni í dag. Force India frumsýndi bílinn formlega í morgun og Fisichella fór síðan sprett á bílnum.

"Mér líst vel á bílinn og tel að með nýjum reglum þá geti allt gerst. Við mætum seint til fyrstu æfinga sem er ekki gott, en ég hef reynslu af þeim dekkjum sem verða notuð í ár sem vonandi kemur okkur til góða", sagði Fisichella.

"Við verðum með Mercedes vél og gírkassa frá meistaraliði McLaren. Samskiptin milli liðanna tveggja ganga vel. McLaren hefur verið meðal bestu liða heims í mörg ár og það ætti að nýtast okkur. Bíll okkar var slakur í fyrra, en núna ættum við að geta stefnt á stigasæti og verðlaunapall annað slagið", sagði Fisichella.

Sjá nánar um Force India




Fleiri fréttir

Sjá meira


×