Formúla 1

Auðvelt hjá Button

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kunnuleg sjón - Button fremstur og Barrichello annar.
Kunnuleg sjón - Button fremstur og Barrichello annar. Nordic Photos / AFP
Jenson Button átti engum vandræðum með að sigra í Mónakó-kappakstrinum í dag en hann kom langfyrstur í mark en næstur var liðsfélagi hans hjá Brawn GP, Rubens Barrichello.

Button var fremstur á ráspól og lét forystuna aldrei af hendi. Barrichello var þriðji á ráspól, á eftir Kimi Raikkönen á Ferrari, en Brasilíumaðurinn náði að taka fram úr Raikkönen fljótlega eftir ræsinguna.

Raikkönen náði að halda þriðja sætinu og félagi hans hjá Ferrari, Felipe Massa, varð fjórði.

Sigurvegari mótsins í fyrra, Lewis Hamilton á McLaren, náði sér engan veginn á strik og varð að sætta sig við tólfta sætið.

Keppnin var því langt frá því að vera spennandi hvað toppbaráttuna varðaði en nokkrir aðrir keppendur lentu í hremmingum. Kazuki Nakajima klessti bílinn sinn á lokahringnum og hið sama hafði Heikki Kovaleinen gert á 53. hring. Hann sagði í viðtali við fjölmiðla skömmu síðar að hann gæti engum nema sjálfum sér um kennt.

Nelson Piquet yngri á Renault var ýtt á vegg af Sebastien Buemi frá Sviss og gat ekkert við því gert. Robert Kubica og Sebastian Vettel féllu einnig báðir úr leik - Kubica hætti vegna bilunar og Vettel klessti á vegg.

Efstu átta í dag:

1. Button, Brawn

2. Barrichello, Brawn

3. Raikkönen, Ferrari

4. Massa, Ferrari

5. Webber, Red Bull

6. Rosberg, Williams

7. Alonso, Renault

8. Bourdais, Toro Rosso

Stigakeppni ökumanna:

1. Button 51 stig

2. Barrichello 35

3. Vettel, Red Bull 23

4. Webber 19,5

5. Trulli, Toyota 14,5

6. Glock, Toyota 12

7. Alonso 11

8.-9. Raikkönen 9

8.-9. Hamilton, McLaren 9




Fleiri fréttir

Sjá meira


×