Fótbolti

Fyrsti leikur Björns í byrjunarliði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björn Bergmann í leik með ÍA síðastliðið sumar.
Björn Bergmann í leik með ÍA síðastliðið sumar. Mynd/Daníel

Björn Bergmann Sigurðsson lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Lilleström gerði þá 1-1 jafntefli við Tromsö á útivelli en Björn Bergmann lék fyrstu 80 mínúturnar í leiknum.

Jöfnunarmark Lilleström kom þremur mínútum fyrir leikslok. Lilleström er enn án sigurs í deildinni og er í fjórtánda sæti sem stendur með þrjú stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×