Innlent

Enn beðið eftir framsalsgögnum vegna Ramos

Hosmany Ramos.
Hosmany Ramos.
Smári Sigurðsson yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra segir að viðeigandi gögn vegna framsals á Brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi hafi ekki enn borist. Yfirvöld í Brasilíu hafa staðfest að þau muni krefjast framsals á Ramos en hann var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi hér á landi. Ramos mun losna úr haldi þann 11.september.

Smári segir að það verði síðan dómsmálaráðuneytisins að taka afstöðu um framsalið þegar gögnin hafa borist.

Hosmany kom til Íslands á vegabréfi bróður síns um miðjan ágúst en yfirvöld áttuðu sig á blekkingunni og handtóku hann. Hann var dæmdur árið 1981 í Braslilíu fyrir stórfelld fíkniefnasmygl á milli Brasilíu og Bandaríkjanna. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að myrða flugmann. Hosmany er lýtalæknir að mennt og einhver frægast fangi Brasilíu. Hann var í slagtogi við fótboltagoðsögnina Péle og fleiri fyrirmenni í Brasilíu á níunda áratugnum.

Hann flúði Brasilíu í upphafi þessa árs en hann hefur skrifað bækur um vondan aðbúnað í brasilískum fangelsum. Hann segist óttast um líf sitt í Brasilíu sökum gagnrýni sinnar á fangelsismálin þar í landi.

Eftir handtökuna á Ramos kom upp sú umræða að jafnvel væri hægt að skipta á Ramos og íslendingum sem dvelja í Brasilískum fangelsum. Meðal annars hefur Brasilíski dómsmálaráðherrann, Romeu Tuma Junior, látið hafa eftir sér í þarlendum fjölmiðlum að ekki sé útilokað að svo gæti verið. Enginn framsalssamningur er á milli Íslands og Brasilíu. Brasilísk yfirvöld gerðu síðast slíkan samning við yfirvöld í Mónakó. Þá var bankamaðurinn Salvatore Cacciola framseldur til Brasilíu.

Smári segist ekki hafa heyrt um fangaskipti af þessu tagi og telur ólíklegt að svo geti orðið. „Þetta er kannski eitthvað sem getur gerst en það eru engin lög né reglur sem ná yfir þetta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×