Formúla 1

McLaren lítur á björtu hliðarnar

McLaren liðið bíður spennt eftir mótinu í Mónakó þar sem Lewis Hamilton vann í fyrra.
McLaren liðið bíður spennt eftir mótinu í Mónakó þar sem Lewis Hamilton vann í fyrra.
Martin Whitmarsh framkvæmdarstjóri McLaren segir að lið sitt verði öflugra í Mónakó um aðra helgi, en reyndist rauninn í Barcelona á sunnudaginn. Hvorugur ökumanna liðsins komst á verðlaunapall, Lewis Hamilton varð tíundi og Heikki Kovalainen féll úr leik vegna bilunnar.

"Við vissum að þetta yrði erfitt mót, en í mótinu á undan vorum við nærri því að komast á verðlaunapall. Við erum miklu betur staddir en fyrir tveimur mánuðum og við verðum öflugri í Mónakó", sagði Whitmarsh.

Hamilton vann mótið í Mónakó í fyrra og tryggði sér meistaratitilinn á árinu, en hefur ekki unnið mót til þessa. Jenson Button er efstur að stigum á Brawn bíl, á meðan allt gengur á afturfótunum hjá Ferrari og McLaren. Þá er Red Bull annað spútniklið á þessu ári.

"Mónakó mótið verður allt annar handleggur. Við verðum sterkir þar og þó við munum ekki beita göldrum til að bæta gengi okkar, þá verður við örugglega sterkari. Það væri vissilega gaman að upplifa kraftaverk í Mónakó, en við teljum að bíll okkar henti vel á götur Mónakó. Hamilton er frábær þar", sagði Whitmarsh.

Sjá brautarlýsingu í Mónakó




Fleiri fréttir

Sjá meira


×