Formúla 1

17 Formúlu 1 mót á Stöð 2 Sport

Ný braut í Abu Dhani mun setja svip sinn á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport.
Ný braut í Abu Dhani mun setja svip sinn á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport. mynd: kappakstur.is

Undirbúningur fyrir væntanlegt keppnistímabil í Formúlu 1 er komiið á fulla ferð á Stöð 2 Sport. Miklar reglubreytingar FIA eiga jafna leikinn til muna og ný braut í lok ársins gæti sett sterkan svip á endasprett meistaramótsins.

Úrslit í meistaramótinu hafa ráðist með eins stigs mun í lokamótinu tvö síðustu ár. Eins og frægt varð í fyrra þá tryggði Lewis Hamilton sér titilinn í síðustu beygju, síðasta móts ársins.

Mikið áhorf var á Formúluna í fyrra og 28% áhorf mældist á landsvísu á lokamótið í Brasilíu.

Sautján mót eru á dagskrá í ár og lokamótið verður í Abi Dhabi að þessu sinni. en fyrsta mótið í Ástrallíu í lok mars. Mikið hefur verið lagt í brautina í Abu Dhabi sem liggur m.a. um hafnarsvæði og minnir um margt á brautina í Mónakó. Brautin er sögð sú dýrasta sem smíðuð hefur verið.

Ýmsir þættir verða á undan beinum útsendingum frá tímatöku og kappakstri sem verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport, auk þess sem upphitunarþættir verða fyrir tímabilið. Æfingar keppnisliða hefjast fyrir alvöru í næstu viku og mun stöðin skoða fjölmargar nýjungar sem hafa gjöbreytt keppnisbílunum í ár.

Þá verður bryddað upp á tæknilegum útskýringum og ítarlegri tölfræði í þáttunum í ár. Einnig verður sett í gang keppni í ökuhermum í þáttum á fimmtudögum, sem mun ljúka með einvígi í síðasta mótinu.

Sjá meira um Abu Dhabi brautina














Fleiri fréttir

Sjá meira


×