Formúla 1

Formúlu 1 lið samþykkja niðurskurð

Bruno Senna bíður þess hvort Honda liðið verður áfram í Formúlu 1, en rekstrarkostnaður hefur verið gífurlegur í íþróttinni síðustu ár.
Bruno Senna bíður þess hvort Honda liðið verður áfram í Formúlu 1, en rekstrarkostnaður hefur verið gífurlegur í íþróttinni síðustu ár. Mynd: Getty Images

FIA, alþjóðabílasambandið og FOTA, samtök Formúlu 1 liða samþykktu í dag að draga verulega úr rekstrarkostnaði á næstu árum.

Efnahagskreppan hefur gengnið nærri íþróttinni og hefur Honda ákveðið að hætta þátttöku í íþróttinni. Tólf aðilar eru þó mögulegir kaupendur að búnaði af liðsins í Brackley í Englandi.

Nýjar reglur hafa minnkað kostnað fyrir þetta ár, en betur má ef duga skal að sögn Max Mosley hjá FIA. Hann sendi öllum keppnisliðumn bréf í vikunni þar sem ítrekað var að verulega þyrfti að draga úr rekstrarkostnaði ef ekki ætti illa að fara á næstu árum. FOTA og FIA samþykktu margar af hugmyndum Mosley í dag á fundi í London.

Æfingum verður fækkað á árinu og á næstu árum verður umfang tæknvinnu minnkað til að mæta aðstæðum. Þá verður lögð þung áhersla á að færa Formúlu 1 íþróttina nær áhorfendum á ýmsan hátt og veita þeim betra aðgengi á mótshelgum.

Sjá nánar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×