Innlent

Tónlistarhús tilbúið 2011 - kostar 14,5 milljarða króna

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Stefnt er að því að taka Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð í notkun í apríl 2011. Í tilkynningu frá Austurhöfn-TR kemur fram að framhald verkefnisins hafi verið tryggt með því Austurhöfn-TR hafi eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu hússins, ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafi nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf.

Með samkomulaginu taki Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgi samningum um byggingu og rekstur TR. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna hafi jafnframt verið tryggð og sé hún hluti af samkomulaginu. Áætlaður kostnaður við að ljúka verkefninu sé 14,5 milljarðar króna, að meðtöldum vöxtum á byggingartíma.

„Um 150 starfsmenn starfa nú við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins, þeim verður nú fjölgað í 200 og í sumar er áætlað að starfsmannafjöldinn verði kominn yfir 300 manns. Gert er ráð fyrir að nú hefjist að nýju vinna við fyrsta áfanga bílakjallara og að lokið verði við hönnun lóðar á næstunni, svo unnt verði að vinna við næsta nágrenni TR sumarið 2010," segir í tilkynningu frá Austurhöfn-TR.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×