Viðskipti erlent

Hlutur Exista og Chris Ronnie í JJB Sports til Kaupþings

Hlutur Exista og Chris Ronnie í sportvörukeðjunni JJB Sports er kominn í eigu Kaupþings í því sem Financial Times kallar dularfull viðskipti. Í breska blaðinu Times er hinsvegar sagt að um einfalt veðkall hafi verið að ræða.

Hluturinn upp á 27,5% var geymdur í Guro Lesure, félagi sem Ronnie og Exista áttu í sameiningu. Í tilkynningu frá JJB Sports kemur fram að Ronnie viti ekki hvenær eða á hvaða verði hluturinn komst í hendur þrotabús Kaupþings.

Þessi tilkynning kom í kjölfar rannsóknar sem Sir David Jones hóf fyrir tveimur vikum eftir að hann var kjörinn stjórnarformaður JJB. Rannsóknin beindist að eignarhaldinu á JJB Sports.

Það hefur alltaf verið óljóst hvaðan Ronnie fékk fjármagn til að kaupa hlutinn ásamt Existu árið 2007 en þá kostaði hann 190 milljón pund. Samkvæmt fréttunum í morgun kom fjármögnunin frá útibúi Singer & Friedlander á eyjunni Mön.

Jólasala JJB var slæm eða 6.8% minni en árið áður og reiknar keðjan með að hafa tapað um 10 milljónum punda, eða tæpum 2 milljörðum kr. á síðasta ári. Við tíðindin féllu hlutbréf JJB um rúm 16%.

Það hefur áður komið fram í fréttum hér að á síðasta ári taldi Exista að hlutur sinn í JJB væri verðlaus.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×