„Vinnumarkaðinum er að blæða út," segir Jes Asmussen aðalhagfræðingur Handelsbanken um tölurnar í samtali við Jyllands Posten. Asmussen segir að hinar nýju tölur sýni að mun fleiri en áður var talið verði fyrir barðinu á hinni leiðinlegu þróun sem orðið hefur á vinnumarkaðinum,
Steen Bocian hjá Danske Markets er á sama máli og Asmussen og segir að ef þróunin er skoðuð í ár komi í ljós að nýráðningum fækkaði um 49.000 manns á milli annars og þriðja ársfjórðung ársins. „Þetta bendir til að tölur um atvinnuleysi sýni ekki réttilega kreppuna á atvinnumarkaðinum," segir Bocian.
Að mati Bocian gefa tölurnar í skyn að búast megi við að hagvöxtur mælist áfram neikvæður á þriðja ársfjórðungi.