Lífið

Guðni Ágústsson setur hús sitt á sölu

Guðni Ágústsson hugsar sér til hreyfings en er ekki að flýja land.
Guðni Ágústsson hugsar sér til hreyfings en er ekki að flýja land.
„Flytja til útlanda? Ertu galinn? Ég er Íslendingur fram í fingurgóma,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins.

Glæsilegt einbýlishús hans á Selfossi, 209 fermetrar auk bílskúrs á besta stað við Ölfusá, hefur nú verið sett á sölu. Fasteignamarkaðurinn lýsir húsinu sem einstöku, hiti í gólfum, glæsistofur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja með fallegum arni. „Skáli er út af stofum. Afar fallegs útsýnis nýtur úr stofum og úr skála yfir Ölfusá og víðar“, og þannig má áfram telja: „Baðherbergi er stórt og með glugga, flísalagt í gólf og veggi og bæði með hornbaðkari með nuddi og gólf­sturtu með glerveggjum.“ Ekki er gefið upp verð á húsi Guðna en samkvæmt auglýsingu er fasteignamat þess rúmar 35 milljónir króna og brunabótamat rúmar 45 milljónir. Gera má ráð fyrir að væntanlegir kaupendur verði að reiða fram mun hærri upphæð fyrir þetta óðalssetur.

Ljóst má vera að Guðni frá Brúnastöðum hefur enginn kotbóndi verið á Selfossi. Sjálfur vill hann lítt tjá sig um hvað valdi því að hann er nú að selja. „Allir í þessu samfélagi eru að hugsa um sín mál. En ég ætla ekkert að ræða það frekar við þig hvernig ég hagræði mínum eignum,“ segir Guðni. Hann vill ekki heldur segja um hvað standi til með búsetu og hvar hún er nema menn geta treyst því að Guðni Ágústsson er ekki að flýja land. - jbg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×