Formúla 1

Button: Sæki til sigurs í öllum mótum

Atgangur fjölmiðla er alltaf mikill og Jenson Button er vinsælastur þessa dagana.
Atgangur fjölmiðla er alltaf mikill og Jenson Button er vinsælastur þessa dagana. Mynd: Getty Images

Jenson Button vann sinn fjórða sigur í fimm mótum í Barcelona í gær og um aðra helgi keppir hann á heimavelli í Mónakó. Þó Button sé breskur að uppruna býr hann í skattaparadísinni Mónakó.

"Sigurinn í gær var mikilvægur, en mótið er það fyrsta í Evrópu af mörgum. Tilfinningin er góð, en það þýður ekki að ég sé oðrinn værukær eftir fjóra sigra í fimm mótum. Ég verð að sækja og taka allt út úr bílnum í öllum mótum. Það þyðir ekkert að slá af", sagði Button um stöðuna.

Hann er með 14 stiga forskot á Rubens Barrichello, en stigagjöfin er þannig að fyrir sigur fást 10 stig, annað sætið 8, síðan 6, 5, 4, 3, 2 og 1 fyrir næstu sæti á eftir.

""Barrichello var mjög fljótur um helgina og var óheppinn að vinna ekki og Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull hafa verið meðal þeirra bestu í síðustu mótum. Það er alls ekki auðvelt að vera í forystuhlutverkinu, en ég mun sækja til sigurs í öllum mótum sem framundan eru. Það er minn stíll", sagði Button.

Miðað við úrslitin í gær stefnir í titilslag Brawn og Red Bull, en liðin þrjú sem voru í titilslag í fyrra gengur ekki vel. Það eru lið BMW, Ferrari og McLaren.

Stigagjöfin í mótum ársins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×