Innlent

Ármann ekki á þing

Ármann Kr. Ólafsson ætlar ekki að taka sæti á lisa Sjálfstæðisflokksins.
Ármann Kr. Ólafsson ætlar ekki að taka sæti á lisa Sjálfstæðisflokksins.

Þingmaðurinn Ármann Kr. Ólafsson mun ekki taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi en hann hafnaði í sjöunda sæti.

 

Í tilkynningu sem Ármann sendi frá sér segir orðrétt:

 

Ég hef tilkynnt kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi að ég muni ekki taka sjöunda sætið á lista flokksins fyrir næstu Alþingiskosningar. Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að beina kröftum mínum í annan farveg um sinn. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem studdu mig um leið og ég þakka öllu því góða fólki sem ég hef starfað með fyrir ánægjulegt samstarf. Síðast en ekki síst óska Sjálfstæðisflokknum alls hins besta í komandi kosningabaráttu.

 

Ármann Kr. Ólafsson, alþingismaður






Fleiri fréttir

Sjá meira


×