Innlent

Vinstri grænir bundnir gegn Sjálfstæðisflokknum

Landsfundi Vinstri Grænna lýkur nú í kvöld en verið er að leggja lokahönd á ályktanir fundarins.

Helstu tíðindi af fundinum í dag eru þau að samþykkt var ályktun þess efnis að Vinstri Græn útiloka að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn að loknum kosningum.

Hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins hefur beðið skipbrot og skilið samfélagið eftir í rúst. Mikilvægt sé að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum og tryggja að ríkisstjórn sitji sem hafi jöfnuð, félagslegt réttlæti, kvenfrelsi og umhverfisvernd að leiðarljósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×