Innlent

Bubbi í áfalli vegna Björns

Valur Grettissoon skrifar
Bubbi gagnrýnir Björn Jörund og segir ekki annað hægt en að láta hann fara.
Bubbi gagnrýnir Björn Jörund og segir ekki annað hægt en að láta hann fara.

Bubbi Morthens er í áfalli eftir að hann heyrði af tengslum Björns Jörundar Friðbjörnssonar við fíkniefnasalann Þorvarð Davíð Ólafsson. Í morgun féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir Þorvarði þar sem fram kom að Björn Jörundur hafi átti í einhverskonar viðskiptum við hann.

Fíkniefnalögreglan hleraði fjögur samtöl þeirra á milli í apríl og maí á síðasta ári en Vísir birti samtalið í heild sinni fyrr í dag. Björn Jörundur neitaði þá í viðtali að hann hefði átti í fíkniefnaviðskiptum við Þorvarð, þó hann viðurkenndi að hann þekkti manninn.

„Þú getur ekki logið þig framhjá þessu símtali, það er ekki fræðilegur," segir Bubbi sem var sjálfur dómari í Idolinu og langt þar áður kunnugur heimi fíkniefna. Hann segir að tungutakið sem notað er í samtali Björns við Þorvarð eigi augljóslega við um fíkniefni. Bubbi segir að „ás" þýði kókaín á götumáli og að „tvíburabróðir" þýðir amfetamín.

„Þetta er hrikalegt. Ég tek þetta mjög nærri mér, Björn er góður piltur og hæfileikaríkur en ef maður er búinn að vera í þessari veröld, þá er þetta eins og leiðarvísir, þetta símtal. Það er ekkert hægt að sverja það af sér hvað er að gerast þarna," segir Bubbi forviða og bætir við: „Ég er í áfalli, mér finnst ég eiga svo mikið í Idolinu."

Bubbi segist hafa heyrt í fullt af fólki sem hóti að segja upp áskrift af Stöð 2 ef Björn verði ekki látinn fara. „Skaðinn er skeður, en þeir gætu minnkað hann með því að láta hann fara og ráða annan dómara í Idolið," segir Bubbi að lokum.

Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.








Tengdar fréttir

Framleiðendur Idols: Mál Björns Jörundar til skoðunar

„Við erum með málið til skoðunar," segir Þór Freysson framleiðandi Idolsins varðandi mál Björns Jörundar Friðbjörnssonar sem flæktist inn í fíkniefnadóm sem féll yfir kókaínsala fyrr í dag. Í dómsorði mátti lesa endurrit af símtali Björns Jörundar við Þorvarð Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir fíkniefnasölu, líkamsárásir og vopnalagabrot.

Idoldómari flæktur í kókaínmál

Fíkniefnasalinn Þorvarður Davíð Ólafsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær líkamsárásir og fíkniefnasölu. Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hljóðritaði samtöl Þorvarðs við viðskiptavini sína og eru þau birt óritskoðuð í dómnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×