Innlent

Tólf ára með áverka eftir sérsveitarmenn

Andri Ólafsson skrifar

12 ára piltur sem yfirbugaður var af sérsveitarmönnum í gær er enn að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir. Móðir hans segir drenginn vera í sjokki en vopnum var beint að honum.

Allt tiltækt lögreglulið var kallað í Lágmúla um þrjú leitið í gær. Vopnaðir sérsveitarmenn voru fremstir í flokki. Tilkynnt hafði verið um vopnaðan mann.

Á sama tíma sat þessi ungi maður, Sindri Snær í framsætinu a Wolkswagen golf bifreið mömmu sinnar þar sem henni hafði verið lagt fyrir utan Lyfju. Sindri var að bíða eftir mömmu sinni og lék sér með leikafangabyssuna sína á meðan.

Skyndilega voru allar hurðir bílsins rifnar upp. Tveir sérsveitarmenn hentu sér í aftursætin, einn í framsætið og þrír veittust að Sindra þar sem hann sat stjarfur af hræðslu. Þeir beindu skammbyssum að honum og skipuðu honum að fara úr bílnum. Þegar Sindri gerði það var hann lagður í jörðina og höndum hans haldið fyrir aftan bak.

„Síðan spurðu þeir allt í einu þegar ég lá í jörðinni hvað ég væri gamall, ég sagðist vera tólf ára," segir Sindri.

Lögreglumönnum hafi brugðið við þetta. Enda bjuggust þeir við vopnuðum manni, ekki vopnlausu barni. Mamma hans Sindra kom á staðinn skömmu síðar og var meira en lítið brugðið.

„Ég trúði því ekki þegar ég sá lögreglumennina og hélt að þeir væru að skamma hann og hefðu tekið byssuna."

Auðbjörg vill ekki gagnrýna vinnubrögð lögreglu í málinu. Eðlilegt sé að taka ábendingar um vopnaða menn alvarlega. En: „Ég hefði náttúrulega viljað að þeir hefðu litið aðeins inní bílinn og séð að um barn væri að ræða og athæfið í raun saklaust. Þess vegna finnst mér þetta harkalegt."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×