Innlent

Lög samþykkt um þingmannanefnd

Ekki náðist samstaða á Alþingi um frumvarp forsætisnefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Þingmenn Hreyfingarinnar sátu hjá í atkvæðagreiðslu þegar frumvarpið var samþykkt í morgun.

Frumvarpið kveður meðal annars á um hvernig Alþingi skuli meðhöndla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem birt verður í næsta mánuði.

Skipa á níu manna þingmannanefnd til að skoða möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð en frumvarpið kveður einnig á um geymslu og birtingu upplýsinga sem skýrsla rannsóknarnefndar er byggð á. Upplýsingar sem falla undir ákvæði laga um persónuvernd verða dulkóðaðar og geymdar á þjóðskjalasafninu. Ekki má aflétta leynd fyrr en eftir 80 ár.

Frumvarpið var samþykkt með 41 atkvæði en þrír þingmenn Hreyfingarinnar sátu hjá í atkvæðagreiðslu.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, lagði fram fjölmargar breytingartillögur við frumvarpið en þær voru allar felldar. Þór telur að núverandi frumvarp sé gallað.


Tengdar fréttir

„Hreyfingin gefur þingmönnum puttann"

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi málflutning þingmanna Hreyfingarinnar í umræðum á Alþingi í dag um þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún sagði Hreyfinguna gefa Alþingi puttann.

Fyrningu ráðherrabrota seinkað

Möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð fyrnast á fjórum árum en ekki þremur, nái breytingar allsherjarnefndar Alþingis á frumvarpi til breytinga á lögum um rannsókn á falli bankanna og tengdum atburðum fram að ganga. Nefndin afgreiddi breytingartillögu þar um á fundi í gærmorgun.

Ráðherraábyrgð Davíðs og Halldórs fyrnd

Embættisfærslur Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar í embætti forsætisráðherra koma ekki til skoðunar sérstakrar þingmannanefndar sem verður gert að kanna möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins.

Nefnd um rannsóknarnefnd skipuð fyrir áramót

Níu manna þingmannanefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verður væntanlega skipuð fyrir áramót. Þingmenn vilja skipa í nefndina sem fyrst til að koma í veg fyrir frekari fyrningu brota sem snerta ráðherraábyrgð.

Þingnefndin er prófsteinn á styrk Alþingis

Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að vinnu þingmannanefndar sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sé prófsteinn á styrk og trúverðugleika þingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×