Viðskipti erlent

Fjármálakreppan fellir fegurðardrottningu Bretlands

Fjármálakreppan hefur nú leitt til þess að hætta verður við fegurðarkeppina Ungfrú Bretland. Stjórnandi hennar, Robert de Keyser, hefur blásið keppnina af tímabundið þar sem kostunaraðilar fengust ekki.

Robert de Keyser segir í samtali við Daily Mail að hann vonist til að geta haldið keppnina "einhvern tímann síðar í ár" en samkvæmt heimildum Daily Mail er alls óvíst að svo verði.

Á síðustu þremur árum hefur keppnin skilað tapi upp á nokkra tugi þúsunda pund á ári og telur Daily Mail eða það sé ástæðan fyrir því að keppninni er hætt fremur að fjármálakreppan sem slík.

Ungfrú Bretland hefur varið haldin árlega frá árinu 1945. Núverandi handhafi titilsins er Gemma Garrett sem m.a. er þekkt fyrir að hafa boðið sig fram til þingsætis á breska þinginu.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×