Menning

Tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Stærsta tilnefningahátíðin til þessa. Egill Örn Jóhannsson hjá Forlaginu og Jónas Skúlason mættu í Listasafn Reykjavíkur á þriðjudag.
Stærsta tilnefningahátíðin til þessa. Egill Örn Jóhannsson hjá Forlaginu og Jónas Skúlason mættu í Listasafn Reykjavíkur á þriðjudag. Vísir/Anton
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar á þriðjudag í Listasafni Reykjavíkur.

Tuttugu ár eru liðin frá því að fyrst var tilnefnt til verðlaunanna og var tilnefningahátíðin sú stærsta hingað til. Verðlaun eru veitt fyrir bækur í tveimur flokkum, flokki skáldverka og flokki fræðibóka, en í samstarfi við Bandalag þýðenda og túlka er einnig tilnefnt til Íslensku þýðingaverðlaunanna.

Þriggja manna dómnefnd velur verðlaunabækur úr hópi þeirra tilnefndu og veitir forseti Íslands verðlaunin á Bessastöðum í lok janúar.

Flottir Felix Bergsson var formaður dómnefndar í flokki fagurbókmennta. Hér er hann ásamt Kristjáni B. Jónassyni, formanni Félags íslenskra bókaútgefenda.
Tilnefningar kynntar Erla Sigurjónsdóttir og Manfreð Vilhjálmsson voru viðstödd þegar tilnefningarnar voru kynntar.
Góðir gestir Kolbrún Bergþórsdóttir, Kilju-drottning af Morgunblaðinu, og Bryndís Loftsdóttir frá Eymundsson voru meðal gesta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.