Innlent

Útilokar kosningar um aðildarviðræður

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, slær út af borðinu hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Aðild að ESB segir hún vera grundvöll að stefnu Samfylkingarinnar í efnahags- og atvinnumálum fyrir kosningar.

Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Dagur B. Eggertsson, varaformaður, kynntu í dag stefnu flokksins í efnahags-, atvinnu- og velferðarmálum. Þar eru kynntar ýmsar bráðaaðgerðir í atvinnumálum og svokölluð velferðarbrú fyrir heimilin sem felur í sér sértæk úrræði fyrir heimili sem eiga í alvarlegum skuldavanda. Formaður Samfylkingarinnar segir aðildarsamning við Evrópusambandið grundvöll áætlunarinnar og leggja grunn að stöðugleika.

Taka þurfi upp evruna í stað krónu en fram að því þurfi stuðning seðlabanka Evrópu í gjaldeyrismálum. Jóhanna segir þessa leið hafa verið rædda og hún talin raunhæf.

Formaður Samfylkingarinnar slær út af borðinu þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort fara skuli í aðildarviðræður við Evrópusambandið.

"Ég tel að það bara tefji málið og gefi ekki raunsanna mynd fyrir fólkið til þess að það geti tekið afstöðu fyrr enþað veit kosti og galla aðildar, hvað það er sem við fáum við aðildina," segir Jóhanna.

Hún telur að núverandi stjórnarflokkar geti náð lendingu í evrópusambandsmálinu verði þeir áfram í stjórn.

"Báðir flokkarnir hafa sagt að það eigi að útkljá þetta mál í þjóðaratkvæðagreiðslu og ég hef trú á því að við í Samfylkingunni og Vinstri grænum finnum lausn á því sem er ásættanleg fyrir báða aðila eins og við höfum fundið lausn á öllum málum á þessum 60 dögum sem við höfum starfað saman," segir Jóhanna að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×