Golf

Birgir Leifur slakur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Nordic Photos/Getty Images

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er ekki beint að kveikja í Evrópumótaröðinni þessa dagana en hann átti afar dapran dag aftur í dag og er á meðal neðstu manna á Saint-Omer Open.

Birgir Leifur lék á 76 höggum í dag eða fimm höggum yfir pari en þetta var fyrsti dagur mótsins. Birgir er í 124. sæti mótsins.

Skagamaðurinn klóraði aðeins í bakkann með því að ná tveimur fuglum í lokin en hann fór meðal annars eina holu í dag á 8 höggum. Vonandi gengur betur hjá honum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×