Golf

Perez setti met

NordicPhotos/GettyImages
Bandaríkjamaðurinn Pat Perez setti glæsilegt met í PGA mótaröðinni í golfi í Bandaríkjunum í gær. Perez er tuttugu höggum undir pari eftir 36 holur á Bob Hope mótinu í Kaliforníu.

Perez lék í gær á 63 höggum en fyrsta dag á 61 höggi. Hann bætti met Toms Lehman fyrir átta árum um eitt högg.

Annar Bandaríkjamaður briny Baird er í öðru sæti tveimur höggum á eftir. Sýnt verður beint frá mótinu á Stöð 2 Sport á sunnudagskvöldið en kylfingarnir leika níutíu holur á fjórum mismunandi völlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×