Innlent

Íslenski svikahrappurinn í Svíþjóð var með handrukkara á hælunum

Íslenskur maður á fimmtugsaldri er talinn hafa staðið fyrir umfangsmiklum pýramídasvindli í Svíþjóð. Sænska fjármálaeftirlitið telur að svindlið nemi milljörðum íslenskra króna. Svikaslóð mannsins teygir sig mörg ár aftur í tímann og til margra landa.

Fjallað er um málið á vef sænska blaðsins Dagens Industry. Þar segir frá því að Íslendingur á fimmtusaldri, sem heitir Sveinn Friðrinnsson, hafi í félagi við aðra, staðið fyrir umfangsmiklu svindli, sem margir svíar hafi orðið fyrir barðinu á. Fólki var lofað gríðarlegri ávöxtun fyrir gjaldeyrisviðskipti í gegnum félag sem heitir Investa Select Offshore, en þetta var meðal annars gert í gegnum vefsíðuna Zierra.net.

Enda þótt svíarnir hafi getað fylgst með gengi fjárfestingarinnar hækka, þá hefur enginn séð krónu og kvarta menn nú á spjallsíðum.

Sænska fjármálaeftirlitið hefur varað við starfseminni og heldur því fram að þetta sé svikamylla; pýradmídasvindl. Málið er enn fremur til rannsóknar hjá sænskum saksóknara. Lögreglan hér á landi kannast hins vegar ekkert við þessi mál.

Fréttastofu hefur ekki tekist að ná tali af Sveini og óvíst er hvar hann er niðurkominn. Hann hefur tengst Kýpur, París, Danmörku og Grundarfirði, en hann á meðal annars matstofuna Krákuna. Sveinn mun hafa komið á Grundafjörð í sumar.

Ferillinn virðist hins vegar langur. DV fjallaði um meint svik hans í Danmörku fyrir fjórum árum. Þangað virðist hann hafa farið, eftir að hafa átt í vafasömum viðskiptum við landa sína hér. Þeir töldu sig margir mjög hlunnfarna í þeim viðskiptum.

Það gekk svo langt að handrukkarar voru sendir á eftir honum út, en hann slapp. Fyrir fáum misserum réði maðurinn tvo lögmenn í sína þjónustu til þess að reyna að gera upp við ýmsa þá sem höfuðu farið illa út úr viðskiptunum. Hann reyndi einnig að ráða sér almannatengslafulltrúa í því skyni að bæta ímynd sína gagnvart fólkinu.

Hann mun hafa gengið frá einhverjum hluta krafnanna, sem í sumum tilvikum námu milljónum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×