Golf

Tiger efstur í Charlotte

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods í Charlotte í dag.
Tiger Woods í Charlotte í dag. Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods er í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdag á móti í PGA-mótaröðinni sem fer fram í Charlotte í Bandaríkjunum.

Þetta er fyrsta mót Tiger eftir að hann varð í sjötta sæti á Masters-mótinu. Hann lék á 64 höggum í dag og fékk sex fugla á síðari níu holunum.

Phil Mickelson og Steve Marino eru í öðru sæti á 67 höggum eða fimm höggum undir pari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×