Formúla 1

F1: Button og Barrichello fremstir

Jenson Button fagnar fyrsta ráspólnum í Formúlu 1 síðan 2006.
Jenson Button fagnar fyrsta ráspólnum í Formúlu 1 síðan 2006. Mynd: Getty Images

Bretinn Jenson Button var fljótastur allra ökumanna í tímatökum á Formúlu 1 bratuinni í Melbourne í nótt. Rubens Barrichello á samskonar Brawn bíl varð annar, en Sebastian Vettel á Red Bull þriðji.

Heimsmeistarinn Lewis Hamilton varð hvergi nærri toppnum á McLaren. Bíll hans bilaði fyrir lokaumferð tímatökunnar og hann ræstir fimmtándi af stað.

Felipe Massa og Kimi Raikkönen á Ferrari ræsa sjöundu og níundu af stað. Nico Rosberg náði besta tíma á öllum æfingum fyrir tímatökuna á Willams. Hann varð fimmti í tímatökunni, á eftir Robert Kubica á BMW.

Sjá nánar um tímatökuna










Fleiri fréttir

Sjá meira


×