Viðskipti erlent

Stærsta hagkerfi Evrópu að rétta úr kútnum

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Mynd/AP
Þýskaland, stærsta hagkerfi Evrópu, virðist vera að ná tökum á efnahagsniðursveiflunni samkvæmt nýlegri könnun sem sýnir fram á mjög mikla veltuaukningu einkageirans þar í landi. Hefur veltan í einkageiranum í Þýskalandi ekki aukist jafn hratt í einum mánuði síðan í maí á síðasta ári.

Innkaupavísitala framkvæmdastjóra (e. purchasing managers index) hefur tekið mikið stökk í ágúst en hún mælist nú 54,2 en var 49 í júlí. Slíkt stökk á innkaupum framkvæmdastjóranna þykir sérfræðingum afar óvænt en ánægjuleg tíðindi. Vöxt vísitölunnar má rekja til þjónustugeirans þar sem atvinnuleysi dróst saman og velta jókst.

Tíðindin þykja skýr merki um að hagkerfi meginlands Evrópu, það er að segja evrusvæðisins, hafi tekið forskot á Bandaríkin og Bretland í viðleitni sinni við endurreisn efnahagslífsins segir í grein Financial Times í dag. Annað stærsta hagkerfi Evrópu, Frakkland, hefur einnig sýnt fram á mikil batamerki.

Eins og Vísir greindi frá í síðustu viku komu Þjóðverjar og Frakkar hagfræðingum í opna skjöldu með því að tilkynna um 0,3% aukningu í landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi.

Þrátt fyrir jákvæðar fréttir frá þessum mikilvægu hagkerfum virðast aðrar Evrópuþjóðir standa þeim töluvert að baki, þar má meðal annars nefna Spán og Ítalíu þar sem landsframleiðsla hélt áfram að lækka umtalsvert á öðrum ársfjórðungi.

Innkaupavísitala evrusvæðisins (e. eurozone composite purchasing managers' index) jókst úr 47 í júlí og í 50 nú í ágúst. Það bendir því margt til þess að hagkerfi evrusvæðisins séu í heild sinni að rétta úr kútnum.




Tengdar fréttir

Mjög jákvæðar fréttir frá stærsu hagkerfum Evrópu

Landsframleiðsla í stærstu hagkerfum evrusvæðinsins, Þýskalandi og Frakklandi, dróst einungis saman um 0,1 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,5% samdrátt á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þykir þetta benda til þess að mesta samdráttarskeið í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni sé senn á enda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×