Handbolti

Fjölskyldudagskrá hjá Valsmönnum í kvöld

Valsmenn hafa slegið til veislu til að hita upp fyrir fjórða úrslitaleikinn gegn Haukum í úrslitaeinvíginu í N1 deildinni í kvöld, en hér er á ferðinni síðasti heimaleikur Valsmanna í vetur.

Fjörið hefst klukkan 18:30 í Vodafonehöllinni þar sem boðið verður upp á andlitsmálningu fyrir börnin, leikur Arsenal og Manchester United í meistaradeildinni verður sýndur á risaskjá og fyrstu fimmtíu gestirnir fá óvæntan glaðning. Veitingar verða á boðstólnum.

Leikurinn sjálfur hefst svo klukkan 20:15.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×