Golf

Tiger: Ekkert hæft í orðrómum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods segir ekkert hæft í þeim orðrómum sem hafa verið á kreiki eftir að hann lenti í árekstri á föstudaginn síðastliðinn.

Fjölmiðlar víða um heim hafa margir hverjir haldið því fram að ástæðan fyrir því að Tiger fór að heiman svo seint aðfaranótt föstudagsins hafi verið sú að honum hafi sinnast við eiginkonu sína. Sú er sænsk og heitir Elin.

„Ég bar ábyrgð á árekstrinum," sagði Tiger í yfirlýsingu sem hann birti á heimasíðu sinni. Tiger ók á brunahana og tré skammt frá heimili sínu.

„Þeir fjölmörgu orðrómar um mig og mína fjölskyldu eru ósannir og meiðandi," sagði Tiger enn fremur.

Eins og fram hefur komið var það Elin sem kom fyrst á vettvang og bjargaði Tiger úr bílnum með því að brjóta eina bílrúðuna með golfkylfu.

„Eiginkona mín, Elin, var mjög hugrökk þegar hún sá að ég var slasaður og í vandræðum. Hún var sú fyrsta til að koma mér til aðstoðar. Allar aðrar staðhæfingar eru rangar."

Að síðustu bað Tiger um að fá frið til að takast á við mál þetta. Yfirlýsingu hans má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×