Framleiðendur Idols: Mál Björns Jörundar til skoðunar 18. febrúar 2009 16:05 Framleiðandi Idol Þór Freysson, segir málið til skoðunar í herbúðum Idolsins. „
Við erum með málið til skoðunar," segir Þór Freysson framleiðandi Idolsins varðandi mál Björns Jörundar Friðbjörnssonar sem flæktist inn í fíkniefnadóm sem féll yfir kókaínsala fyrr í dag. Í dómsorði mátti lesa endurrit af símtali Björns Jörundar við Þorvarð Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir fíkniefnasölu, líkamsárásir og vopnalagabrot. Í samtali þeirra á milli, sem var hlerað af fíkniefnalögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, kom aldrei beinlínis fram að Björn hefði verið að versla fíkniefni af Þorvarði. Rætt var um „einar" eða „tvíburabróðir" sem voru keyptir af Þorvarði á tólf þúsund krónur. Þegar Vísir.is ræddi við Björn Jörund fyrr í dag vegna málsins sagði hann að ekki hefði verið um fíkniefnaviðskipti að ræða. Hann sagðist hinsvegar hafa verið yfirheyrður vegna málsins á síðasta ári. Framleiðendur höfðu ekki kannað málið til hlítar þegar við þá var rætt og voru að kynna sér það. Að sögn Þórs má vænta viðbragða í fyrsta lagi á morgun vegna málsins en þeir höfðu ekki rætt við Björn sjálfan. Dómurinn sem féll yfir Þorvarði datt út af vef Héraðsdóms Reykjavíkur eftir að Vísir birti frétt um Björn Jörund. Þegar haft var samband við ritara dómsins fengust þau svör að dómurinn hefði dottið út af tæknilegum ástæðum og unnið væri að því að koma honum aftur inn. Hann hefur ekki enn verið endurbirtur.
Mest lesið Stórskemmdi grasflötina við Höfða Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Innlent Kennarar samþykkja innanhússtillögu Innlent Banaslys á Þingvallavegi Innlent Segir menntuð fífl hættuleg fífl Innlent Trump titlar sig konung Erlent Heiða Björg verður borgarstjóri Innlent Fjórtán ára barn hafði mikla peninga af níðingi Innlent Tveir sérlega hættulegir gómaðir á Íslandi og gríðarleg fjölgun verkefna Innlent Fleiri fréttir Verkföll hafin í sex skólum Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Hellti kveikjarabensíni yfir mann og hótaði að kveikja í Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Banaslys á Þingvallavegi Samræði við þrettán ára nauðgun eftir allt saman Nýr borgarstjóri kynntur á morgun Kennarar samþykkja innanhússtillögu Segir menntuð fífl hættuleg fífl Kókaínsmygl systkina og maka þeirra út um þúfur Fleinn rekinn í hjarta Evrópu verði Úkraína beygð í duftið Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Refsing Dagbjartar þyngd verulega Sameinar sýslumenn: Róar taugar starfsmanna og segir ekkert að óttast Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Hugmyndir Þorgríms séu litaðar vanþekkingu og fordómum Segir karla í forréttindastöðu hafa stofnað Háskólann Stórskemmdi grasflötina við Höfða Bein útsending: Tökum samtalið - Verndandi þættir í lífi barna og ungmenna Uppsagnarákvæði stendur í fólki Þurfi að leggja meira í skóla án aðgreiningar svo stefnan virki Segja loforð svikin í Skálafelli Mátti ekki kalla mann nauðgara með barnagirnd eftir allt saman Alvarlegt umferðarslys á Þingvallavegi Sjá meira