Sport

Snýr Hatton aftur í hringinn í nóvember?

Ómar Þorgeirsson skrifar
Manny Pacquiao og Ricky Hatton.
Manny Pacquiao og Ricky Hatton. Nordic photos/AFP

Samkvæmt breska götublaðinu The Sun er Ricky Hatton byrjaður að æfa af fullum krafti á ný eftir að hafa tekið sér frí frá hnefaleikum eftir niðurlægjandi tap gegn Manny Pacquiao í maí síðast liðnum.

Blaðið segir hinn breska Hatton vera að undirbúa endurkomu sína í hringinn í nóvember. WBA-veltivigtarmeistarinn Vyacheslav Senchenko, sem er enn taplaus, er talinn líklegur andstæðingur Hattons og viðræður munu vera komnar nokkuð á veg.

Hatton er sagður óviljugur að leggja hanskana á hilluna eftir tap og þess vegna ætli hann sér að taka einn bardaga annað hvort í MEN Arena í Manchester eða á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff.



Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×