Handbolti

Haukar fara til Ungverjalands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sigurbergur Sveinsson, leikmaður Hauka.
Sigurbergur Sveinsson, leikmaður Hauka. Mynd/Anton

Í morgun var dregið í 3. umferð EHF-keppninnar í handknattleik og voru Íslandsmeistarar Hauka í pottinum.

Haukar drógust gegn ungverska liðinu PLER KC frá Ungverjalandi.

Fyrri leikur liðanna fer fram á Ásvöllum 14. eða 15. nóvember og síðari leikurinn ytra viku síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×