Golf

Cejka með fimm högga forystu á Players-mótinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alex Cejka á Sawgrass-vellinum í gær.
Alex Cejka á Sawgrass-vellinum í gær. Nordic Photos / Getty Images

Þjóðverjinn Alex Cejka er með fimm högga forystu á sex kylfinga, þeirra á meðal Tiger Woods, fyrir lokakeppnisdaginn á Players-mótinu í golfi á Sawgrass-vellinum í Bandaríkjunum.

Cejka lék á 72 höggum í gær og er á samtals ellefu höggum undir pari. Tiger Woods var í 22. sæti þegar keppni hófst í gær en náði að koma sér upp í 2. sætið ásamt fimm öðrum kylfingum.

Sergio Garcia, núverandi meistari, lék á 73 höggum í gær og er samtals á einu höggi yfir pari.

Forysta Cejka fyrir síðasta keppnisdaginn er sú mesta á þessu stigi mótsins undanfarin 36 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×