

Raddir gærdagsins
Tveir gamlir stjórnmálajaxlar leggja undir sig leiðarsíðu Fréttablaðsins um helgina. Annar skrifar leiðara, hinn pólitíska fréttaskýringu. Leiðarahöfundurinn er fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, stjórnmálagreinandinn fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Einhvern veginn fannst mér skrif þeirrra beggja vera svolítið fyrrverandi.
Jón Sigurðsson, framsóknarmaður, segist vilja fá einkaaðila til að fjárfesta í orkuiðnaði. Þeir komi inn með svo mikla peninga og þekkingu: „Við þurfum að sækja þekkingu, viðskiptatengsl og fjármagn þangað sem þessa hluti er besta að finna ...." Leiðarinn gengur meira og minna út á að réttlæta aðkomu fjármagns í einkaeigu; að gagnvart því megi ekki ala á „tilefnislausri tortryggni". Jón Siguðrssson segir að við megum alls ekki rugla saman auðlindum á láði og legi við auðlindir mannauðsins. Engar auðlindir komist „í hálfkvisti við auðlindir fólksins sjálfs". Hér mun vera átt við menntun og atgervi þjóðarinnar.
Spurningin sem Jón Sigurðsson svarar ekki er hvað sé frábrugðið við stöðu Íslendinga og annarra þjóða sem missa forræði yfir auðlindum sínum - og þar með getu til að standa straum af kostnaði menntakerfis og annara innviða samfélagsins. Og hvað varðar peningana og þekkinguna: Getur verið eftir upplýsandi umræðu í fjölmiðlum um Hitaveitu Suðurnesja, að JS geri sér ekki grein fyrir því að fjárfestar þar koma ekki færandi hendi? Þeirra ætlan er þvert á móti að hafa af okkur peninga; láta arðinn færa sér eignir. Arður sem rennur inn í samfélag en ekki út úr því er til góðs. Arðurinn af Gvendarbrunnum og hitaveitum hefur hingað til runnið inn í samfélagið og byggt það upp. Geysir Green og Magma vilja hins vegar færa arðinn í eigin vasa! Hvaða þekkingu bjóða þessir aðilar? Yfir hvaða þekkingu í orkumálum búa þeir Bjarni, Hannes, Finnur...?
Svo er það Þorsteinn Pálsson, sjálfstæðismaður. Hugsun hans virðist mér ganga út á það helst að túlka málefnalegar umræður innanbúðar í stjórnmálaflokkum sem slagsmál og valdabaráttu einstaklinga. Þetta er dæmigerð stjórnmálahugsun gærdagsins. Morgundagurinn snýst um opna umræðu og lýðræðislega. Þeir sem reyna að gera slíka stjórnmálahugsun tortryggilega eiga heima í sögubókum fortíðarinnar. Kannski eiga fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar helst heima þar.
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
Skoðun

Nýr vettvangur samskipta?
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Nokkur atriði sem almennum borgara finnst að helst megi ekki ræða – eða mjög sjaldan
Hjalti Þórðarson skrifar

Vilja Ísland í sambandsríki
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Blikkandi viðvörunarljós
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

„Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi
Linda Jónsdóttir skrifar

Metnaðarfull markmið og stórir sigrar
Halla Helgadóttir skrifar

Hvers virði er vara ef hún er ekki seld?
Jón Jósafat Björnsson skrifar

Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar