Innlent

Barðastrandarræningi vill hefja nýtt líf

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Marvin að kjassa hundinn sinn, Mjölni.
Marvin að kjassa hundinn sinn, Mjölni.
„Þetta er náttúrulega hræðilegt dæmi. Ég hef séð rosalega eftir þessu síðan," segir Marvin Kjarval M., einn þeirra sem ákærður er fyrir ránið á Barðaströnd 25. maí síðastliðinn.

„Ég lagði samt aldrei hendi á þennan mann, ég skaðaði hann ekki eða ógnaði honum. Ég hef samt á samviskunni að hafa ekki stoppað þetta," segir Marvin, sem vill þó síður fara út í smáatriði málsins.

Marvin er lesendum Vísis kunnur, en hann missti hundinn sinn Mjölni í kerfinu fyrr í sumar þegar hann var gefinn nýjum eigendum eftir að hafa týnst. Marvin gat ekki sótt Mjölni til þar til bærra yfirvalda eftir að hann fannst því hann var í meðferð á Vogi. Hundurinn er enn ófundinn, en yfir 7000 manns hafa skráð sig í hópinn Mjölni skilað á Feisbúkk.

Aðspurður játar Marvin að hafa verið í neyslu á þessum tíma, en hann sé nú edrú.

„Þegar þetta skeði þá uppgötvaði ég að líf mitt var meira eða minna orðið viðbjóðslegt. Ég skráði mig í meðferð, fór inn á Vog, útskrifaðist þaðan og er búinn að vera edrú síðan."

Marvin vonast til að það verði honum til málsbóta fyrir dómi.

„Það er samt ekki ástæðan fyrir því að ég reif mig upp. Þegar maður áttar sig á því að maður hefur komið nálægt svona skelfilegum hlut, þá liggur það náttúrulega alveg rosalega þungt á manni," segir Marvin. Hann segir fíkniefnaheiminn ekki líf heldur kviksyndi sem maður drukknar í áður en maður veit af.

Marvin fer fyrir dóm á morgun og er að eigin sögn stressaður fyrir því, enda fyrsta skiptið sem hann tekst á við svona lagað. Hann segist þó vilja taka líf sitt í gegn og standa sig svo hann endi ekki í líkkistu eða lokaður inni.

„Ég ætla að fara aftur í skóla. Framtíðarplanið er að flytja til Þýskalands og verða fullgildur hundaþjálfari. Ég elska hunda, allt við þá," segir Marvin, sem hefur verið að hjálpa ýmsu vinafólki við að þjálfa hunda þess.




Tengdar fréttir

Yngsti mannræningi á Íslandi ákærður í Barðastrandarmálinu

Axel Karl Gíslason, einn þeirra sem ákærður er fyrir innbrotið og frelsissviptinguna á Barðaströnd 25. maí síðastliðinn, á að baki tveggja ára fangelsisdóm fyrir að ræna starfsmanni Bónuss á Seltjarnarnesi árið 2005. Axel, sem var á skilorði á þeim tíma, neyddi starfsmanninn með hótunum ofan í skott á bíl og var svo ekið á brott. Bíllinn var stöðvaður við hraðbanka þar sem starfsmaðurinn var neyddur til að taka 30 þúsund krónur út úr hraðbanka, sem voru svo hirtar af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×