Sport

Witter: Myndi klára Khan í fáum lotum

Ómar Þorgeirsson skrifar
WBA-léttveltivigtarmeistarinn Amir Khan.
WBA-léttveltivigtarmeistarinn Amir Khan. Nordic photos/AFP

Fyrrum WBC-léttveltivigtarmeistarinn Junior „The Hitter" Witter vill ólmur mæta WBA-léttveltivigtarmeistarnum Amir Khan um leið og hann er búinn að endurheimta meistarabeltið sitt gegn Devon Alexander í bardaga sem fram fer 1. ágúst næstkomandi.

Hinn 35 ára gamli Witter er sannfærður um að hann myndi ekki vera lengi að klára ungstirnið Khan ef hann fengi tækifæri til þess að mæta hinum 22 ára gamla landa sínum í hringnum.

„Khan leit ágætlega út gegn Kotelnik en ég held að hann myndi ekki endast lengi á móti mér. Ég myndi klára hann í fáum lotum," er haft eftir Witter í The Mirror.

Fyrir utan það að Witter þurfi fyrst að vinna Alexander og endurheimta WBC-léttveltivigtarbeltið til þess að mæta Khan er líklegt að Dimitry Salita, sem er efstur á áskorendalista WBA-hnefaleikasamtakanna, sé á undan Witter í goggunarröðinni og bardagi þeirra á milli gæti verið settur í lok sumars eða í haust.





Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×