Viðskipti innlent

Verðmat á áætlun

Verðmat endurskoðunar­fyrirtækisins Deloitte Touche á efnahagsreikningi nýju bankanna er á áætlun, samkvæmt upplýsingum frá Fjármála­eftirlitinu.

Stefnt var að því að skila verðmatinu inn í síðasta lagi í gær. Við tekur skoðun breska fjármálafyrirtækisins Olivers Wyman á verðmatinu og mun það birta endanlegt verðmat á efnahagsreikningi nýju bankanna um miðjan mánuðinn.

Þegar verðmati lýkur munu bankarnir gefa út skuldabréf til gömlu bankanna í skiptum fyrir eignir.- jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×