Formúla 1

Kona líkleg í Formúlu 1

Danica Patrick hefur slegið mörgum karlkyns ökumanninum við á kappakstursbrautinni.
Danica Patrick hefur slegið mörgum karlkyns ökumanninum við á kappakstursbrautinni. Mynd: Kappakstur.is

Danica Patrick þykir líklegur ökumaður hjá nýju bandarísku Formúlu 1 lið sem verður formlega kynnt til sögunnar 24. febrúar.

Danica ekur í Indy Racling league mótaröðinni í Bandaríkjum og þykir fær í sínu fagi. Hún vann sinn fyrsta kappakstur í mótaröðinni í fyrra.

USF1 heitir liðð sem er í eigu Ken Anderson og Peter Windsor sem báðir hafa mikla reynslu af akstursíþróttum. Windsor var áður keppnisstjóri Williams liðsins.

Danica er mjög vinsæl hjá amerískum fjölmiðlum og hefur verið fyrirsæta hjá mörgum tímaritum frá því hún fór að slá í gegn í kappakstri.

Sjá nánar um Danicu
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×