Innlent

Bankarnir hafa 90 daga til að gera upp ólögmæt lán

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Árni Páll Árnason, enfahags- og viðskiptaráðherra.
Árni Páll Árnason, enfahags- og viðskiptaráðherra.

Bankar þurfa að eiga frumkvæði að því að endurgreiða skuldurum ofgreidd gengislán innan 90 daga frá því að ný lög um um uppgjör gengistryggðra lána taka gildi en þau voru samþykkt á Alþingi í laugardag og taka þegar gildi.

Lögin sem samþykkt voru á Alþingi á laugardag, síðasta starfsdag þingsins á þessu ári, veita fyrirmæli um og er ætlað að leysa úr ágreiningi um hvernig skuli gera upp gengistryggð lán sem dæmd voru ólögmæt af Hæstarétti. Samkvæmt hinum nýsamþykktu lögum skal miða um uppgjör lánanna við lægstu vexti sem Seðlabanki Íslans ákveður á almennum verðtryggðum útlánum. Og skal um verðtryggingu miða við vísitölu neysluverðs.

Uppgjör að frumkvæði lánveitanda

Samkvæmt lögunum þarf uppgjör vegna ofgreiðslu á gengistryggðum lánum að fara fram að frumkvæði lánveitanda innan 90 daga frá gildistöku laganna. Ákvæðið tekur ekki aðeins til húsnæðislána heldur einnig til lána- og eignaleigusamninga sem einstaklingar hafa gert vegna kaupa á einkabíl og er bönkunum og eignaleigufyrirtækjum skylt samkvæmt hinum nýju lögum að senda skuldaranum útreikning á nýjum höfuðstól og eða endurgreiðslu á því sem hann hefur ofgreitt innan sextíu daga. Er efnahags- og viðskiptaráðherra heimilt að fela umboðsmanni skuldara að hafa eftirlit með því að bankarnir standi í stykkinu varðandi þessa útreikninga.

Samkvæmt lögunum er skuldurum með ólögleg gengistryggð lán einnig veittur sá kostur að færa höfuðstól lánsins í erlendar myntir eins og um gilt erlent lán hafi verið að ræða þegar það var veitt. Ef þessi leið er valin falla niður heimildir til leiðréttingar á greiðslum og höfuðstól samkvæmt ákvæðum laganna.

Þá mæla lögin fyrir um endurupptaka verði heimiluð í málum þar sem dómur hefur gengið um kröfu um ólögmæta gengistryggingu þrátt fyrir að þriggja mánaða frestur um endurupptöku samkvæmt lögum um meðferð einkamála, sé liðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×