Innlent

Segir kjöraðstæður vera að skapast fyrir Vítisengla og Jón stóra

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Við erum að skapa kjöraðstæður fyrir Vítisengla og menn eins og Jón stóra segir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Dómskerfið sé að yfirfyllast sem sé afleiðing af því að menn fóru ekki í almennar leiðréttingar á skuldum. Nýjar tölur um afskriftir skuldir fyrirtækja sýni að of hægt gangi.

Fyrstu tölur sem birst hafa um afskriftir af skuldum fyrirtækja í bankakerfinu birtust á Stöð 2 í gærkvöldi. Þar kom fram að 272 milljarðar króna hafa verið afskrifaðir af skuldum fyrirtækja og eignarhaldsfélaga frá byrjun síðasta árs. Friðrik Ó Friðriksson er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Hann segir tölurnar hljóma eins og menn séu byrjaðir að taka leiðréttingar á skuldum fastari tökum en enn sé hér alltof varlega og hægt gengið.

Hann segir að nýtt samkomulag um skuldaafskriftir fyrirtækja muni skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja og velta kostnaði hrunsins út í verðlagið. Eina skynsama leiðin sé að fara í almennar leiðréttingar skulda. „Ef ekki tekst að vinda ofan af þessum vanda nægilega hratt þá munum við sjá hér samfélagsgerð sem við viljum alls ekki hafa, þar sem menn muni leita réttar síns framhjá lögunum."

Friðrik óttast að sú aðferð stjórnvalda og fjármálageirans að afskrifa einkum skuldir þeirra skuldsettustu skapi úlfúð í samfélaginu og verði til að menn reyni að innheimta skuldir sínar utan dóms og laga, með aðstoð manna eins og Jóns stóra. Slíkar fregnir hafi borist honum til eyrna. „Það er í raun verið að hygla þeim sem fóru óvarlegast en þeir sem fóru varlegast eru skildir eftir í súpunni. Dómskerfið er að yfirfyllast," segir Friðrik og bætir við að ágreiningur milli aðila vaxi, menn verði bíræfnari við að svína á samborgurum sínum. Þá skapist kjöraðstæður fyrir Vítisengla og þess háttar menn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×