Red Bull ökumennirnir Sebastian Vettel og Mark Webber náðu fyrsta og öðru sæti í tímatökunni í Mlebourne i Ástralíu í morgun, en Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji.
Munaði 0.1 sekúndu á Vettel og Webber, en ljóst að heimamenn vilja sigur Webbers sem er borinn og barnfæddur Ástrali. Webber hafði náð besta tíma á lokaæfingu keppnisliða fyrir tímatökuna.
Heimsmeistarinn Jenson Button varð fjórði á McLaren Mercedes, en félagi hans Lewis Hamilton varð aðeins ellefti, sem eru mikil vonbrigði fyrir McLaren liðið.
Felipe Massa skilaði sér í fimmta sæti á Ferrari og Mercedes mátarnir Nico Rosberg og Michael Schumacher urðu í sjötta og sjöunda sæti. Rubens Barrichello kom Williams í níunda sætið og Robert Kubica varð tíundi, en hann var með besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða. Hann náði ekki að fylgja því eftir, frekar en Hamilton sem var með besta tíma á annarri æfingu föstudags.
Rásröð og timarnir
1. Vettel Red Bull-Renault 1:23.919
2. Webber Red Bull-Renault 1:24.035
3. Alonso Ferrari 1:24.111
4. Button McLaren-Mercedes 1:24.675
5. Massa Ferrari 1:24.837
6. Rosberg Mercedes 1:24.884
7. Schumacher Mercedes 1:24.927
8. Barrichello Williams-Cosworth 1:25.217
9. Kubica Renault 1:25.372
10. Sutil Force India-Mercedes 1:26.036
11. Hamilton McLaren-Mercedes 1:25.184
12. Buemi Toro Rosso-Ferrari 1:25.638
13. Liuzzi Force India-Mercedes 1:25.743
14. de la Rosa Sauber-Ferrari 1:25.747
15. Hulkenberg Williams-Cosworth 1:25.748
16. Kobayashi Sauber-Ferrari 1:25.777
17. Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1:26.089
18. Petrov Renault 1:26.471
19. Kovalainen Lotus-Cosworth 1:28.797
20. Trulli Lotus-Cosworth 1:29.111
21. Glock Virgin-Cosworth 1:29.592
22. di Grassi Virgin-Cosworth 1:30.185
23. Senna HRT-Cosworth 1:30.526
24. Chandhok HRT-Cosworth 1:30.613