Innlent

Ók út í skurð í Haukadal

Karlmaður, sem var einn í bíl sínum, slapp ómeiddur þegar bíllinn fór út af veginum skammt frá Geysi í Haukadal og hafnaði ofan í skurði.

Ekki var hálka á veginum og engin önnur skýringa á óhappinu en sú að ökumaður segist hafa litið af veginum um stund og þegar hann leit aftur út hafi bíllinn stefnt útaf. Hann er nokkuð skemmdur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×