Innlent

Geðlæknar skila mati á sakhæfi Gunnars Rúnars morgun

Breki Logason skrifar

Á morgun kemur í ljós hvort þinghaldi verði lokað í máli Gunnars Rúnars Sigurþórssonar sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Helgasyni að bana í ágúst síðasliðnum. Tveir geðlæknar munu einnig skila inn yfirmati á geðrannsókn, þar sem Gunnar Rúnar er metinn ósakhæfur.

Við þingfestingu málsins þann 19.nóvember játaði Gunnar Rúnar að hafa orðið Hannesi að bana líkt og líst er í ákæru. Verjandi Gunnars fór þá fram á að þinghald yrði lokað, til verndar sakborningi og fjölskyldu hans. Það voru ættingjar Hannesar ósáttir við:

Kristín Helgadóttir, systir Hannesar, er ekki sátt við möguleikann á lokuðu réttarhaldi. Þannig sagði hún í viðtali við fréttamann Stöðvar 2 við þingfestingu málsins:

„Ég vil náttúrulega þinghald opið eins og þinghöld eiga að vera og ég get ekki skilið það að það sé verið að hlífa sakborningi og fjölskyldu hans, en ekki minni fjölskyldu. Ég er systir Hannesar og ég þoli alveg að hafa opið réttarhald. Ég get ekki bakkað til baka það sem er búið að gera. Sakborningur hann valdi sér þetta. Ég valdi þetta ekki, né Hannes bróðir minn. Þannig að mér finnst mjög skrýtið að saksóknari sé að mótmæli ekki einu sinni lokuðu opnu nei lokuðu réttarhaldi."

Systursonur Hannesar sendi í kjölfarið dómsmálaráðherra og ríkissaksóknara opið bréf vegna málsins, þar sem hann spurði ennfremur hversvegna kaldrifjaður morðingi hefði ekki borið handjárn við þingfestinguna.

Þá kom ennfremur fram að tveir geðlæknar sem framkvæmt höfðu geðrannsókn á Gunnari höfðu komist að því að hann væri ósakhæfur.

Saksóknari fór þá fram á að tveir geðlæknar í viðbót framkvæmdu svokallað yfirmat á geðrannsókninni, en því yfirmati verður skilað inn til dómara við fyrirtöku málsins á morgun.

Það mun síðan koma í ljós þegar endanlegur dómur verður kveðinn upp í málinu, hvort Gunnar Rúnar Sigurþórsson verður metinn sakhæfur, eða ekki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×