Innlent

Vingaðist við Vísi í morgun og fékk farsíma að gjöf

Samskonar sími og Jóhann vann.
Samskonar sími og Jóhann vann.

Það var endurskoðandinn Jóhann Óskar Haraldsson sem sigraði í vinaleik Vísis í dag. Hann fær splunkunýjan N8 síma sem kemur að góðum notum að hans sögn enda sjálfur með gamlan Nokia síma.

„Ég lækaði þetta bara í morgun, mig langaði svo í símann," segir Jóhann alsæll með vinninginn.

Hann var einn af þeim tæplega fjórtán þúsund vinum Vísis sem kom til greina. Hann er þó ekki eini heppni vinur Vísis því tveir aðrir fengu bækur og sá þriðji geisladisk. Þá hlutu sex lesendur Vísis pítsur að gjöf.

Leikurinn heldur áfram á næstu vikum og því um að gera að bæta Vísi við vinalistann á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×