Innlent

Ribbaldar á Selfossi höfðu framið annað rán nokkru áður

Lögreglan á Selfossi hefur lagt mikla vinnu í rannsókn á ránsmálinu frá þarsíðustu helgi þegar þrír menn réðust inn á heimili í bænum og ógnuðu íbúum með hnífum. Við rannsókn málsins hefur komið fram að tveir þeirra höfðu framið annað rán í bænum nokkrum dögum áður, en sá sem fyrir því varð þorði ekki að kæra málið til lögreglu. Vonir standa til að rannsókn ljúki á næstu dögum og málið þá sent ákæruvaldi til frekari ákvörðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×