65 kíló af fíkniefnum tekin - þrefalt meira en í fyrra 20. desember 2010 07:00 Mynd úr safni.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt um það bil þrefalt meira magn fíkniefna í ár en í fyrra. Það sem af er ári hafa rúmlega 65 kíló af fíkniefnum verið haldlögð í umdæminu, samkvæmt bráðabirgðatölum, á móti tæpum 23 kílóum í fyrra. Þar vega þungt 37 kíló af fíkniefninu khat, sem Lithái og Breti voru gripnir með í ágúst síðastliðnum, en einnig hefur meira magn öðrum efnum, svo sem kókaíni, verið haldlagt. „Ég held að góður árangur í baráttunni við fíkniefnavandann, innflutning efna, sölu og dreifingu skýrist fyrst og fremst af mikilli og góðri samvinnu þeirra sem að þessum málum koma, það er að segja lögreglu og tollgæslu," segir Gunnar Schram yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum. „Samstillt vinnubrögð þessara aðila eru að skila mikilvægum árangri," bætir Gunnar við. „Að mínu mati hefur þessi samvinna eflst mjög með hverju ári og þessir aðilar vinna orðið í dag sem ein heild. Enda er það nauðsynlegt ef árangur á að nást." Þá segir Gunnar fleiri þætti spila inn í, svo sem aukna meðvitund almennings í þessum efnum sem vegi þungt því árvökulir borgarar veiti oft gagnlegar upplýsingar. Auk kílóanna 65 hefur lögregla tekið um 500 kannabisplöntur það sem af er ári. Mun fleiri Íslendingar en útlendingar voru teknir í smyglmálum fíkniefna eins og á síðasta ári. Þá hafa átta smyglarar verið teknir með fíkniefni innvortis í ár á móti ellefu í fyrra. - jss
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Fréttir Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent Fleiri fréttir Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Sjá meira