Innlent

Sendibíll fór nokkrar veltur

Frá Skagafirði.
Frá Skagafirði.
Bílvelta varð í Skagafirði um klukkan tíu í morgun þegar sendibíll valt nokkrar veltur skammt frá brúnni yfir Vesturós. Á fréttavefnum Feyki segir að ökumaður hafi verið einn í bílnum og slapp hann án teljandi meiðsla en var engu að síður fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Feykir hefur eftir lögreglu að á svæðinu sé mikil hálka og því brýnt að keyra varlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×