Innlent

Enn röskun á flugi frá Bretlandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svona hefur útlitið verið á flugvöllum í Bretlandi undanfarna daga. Mynd/ afp.
Svona hefur útlitið verið á flugvöllum í Bretlandi undanfarna daga. Mynd/ afp.
Enn er töluverð röskun á flugi milli Keflavíkur og Bretlands vegna óveðursins í Bretlandi.

Töluverð seinkun hefur verið á flugi Iceland Express sem flýgur til og frá Gatwick flugvelli. Mattías Páll Imsland, forstjóri Iceland Express, segist gera ráð fyrir að það verði flogið. Flugi Icelandair, sem flýgur til og frá Heathrow, hefur verið aflýst.

Samgöngur í Bretlandi hafa lamast að verulegu leyti vegna óveðursins. Tafir hafa verið á lestarsamgöngum og hraðbrautir hafa stíflast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×