Innlent

Karlmaður lést eftir bílslys

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að ekið var á hann á gatnamótum Bergþórugötu og Snorrabrautar um fimmleytið í gær. Maðurinn hlaut höfuðáverka auk fleiri meiðsla og var fluttur á slysadeild Landspítala. Hann var úrskurðaður látinn skömmu eftir komu þangað. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

Rannsókn málsins stendur yfir og lýtur m.a. að stöðu umferðarljósa þegar slysið varð, en talið er að hinn gangandi hafi farið yfir götuna á móti rauðu ljósi. Þá er bifreið ökumanns til skoðunar. Ekki er talið að um hraðakstur hafi verið að ræða.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×