Innlent

Setti met í sæðistöku

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Grábotni gæti örugglega þjónað öllum þessum kindum. Mynd/ Vilhelm.
Grábotni gæti örugglega þjónað öllum þessum kindum. Mynd/ Vilhelm.
Hrúturinn Grábotni 06-833 setti fyrir helgi nýtt met í sæðismagni sem gefið hefur verið á einum degi. Samtals gaf hann 280 sæðisskammta, en gott þykir ef hrútur skilar 100 skömmtum. Sæðistakan fór fram á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands.

Fram kemur á vef Búnaðarsambands Suðurlands að um er að ræða mesta magn sem hrútur hefur gefið af sæði á einum degi hjá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands og er talið líklegt að um Íslandsmet sé að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×